|
Blogg
Anna
Margrét
Beatrice
Gína
Sandra
Fréttir af nýjum bloggfærslum:
Íslenskar stúlkur
Netfélag íslenskra
klæðskiptinga - Stofnað 1997
Um Íslenskar stúlkur
Félagið var stofnað 1997 í þeim tilgangi að færa saman klæðskiptinga á Íslandi. Meðlimum félagsins hefur fjölgað hægt en örugglega í gegnum tíðina en ljóst er að enn eru nokkurhundruð klæðskiptingar á landinu sem ekki hafa fundið þessa heimasíðu.
Þó talað sé um "félagið" er um að ræða óformlegan félagsskap. Gjöld eru engin, stjórn er engin og í raun hefur félagsskapurinn þann eina tilgang að koma klæðskiptingum í samband við hvorn annan.
Félagsskapurinn er ekki "deit-klúbbur" eða "sex-klúbbur".
Engir reglulegir fundir eða samkomur eru haldnar en meðlimir félagsins hittast stöku sinnum, tveir eða fleiri saman.
Ef þú ert klæðskiptingur getur þú sett þig í samband við Gínu (cd_gina@yahoo.com) og komist á félagatalið. Það er fyrsta skrefið í því að hitta aðra sem skilja nákvæmlega hvernig þú ert og hvað þú hugsar.