Íslenskar stúlkur
Netfélag íslenskra
klæðskiptinga

Stofnað 1997

:: Loka glugga ::

Munalostinn og þú

Kæri Dr. Love. Ég er karlmaður á þrítugsaldri og er með þungar áhyggjur af því að það sé eitthvað alvarlegt að mér. Málið er að alltaf þegar ég klæði mig í kvenmannsinniskó þá blýstendur mér og ég enda alltaf á því að fróa mér. Mesta kikkið fæ ég út úr því að vera nógu lengi í inniskónum þar til ég heyri smella í þeim. Nú er svo komið að ég varla get náð honum upp án þess að vera í þessum inniskóm! Hvað er eiginlega í gangi hérna hjá mér? Er ég klæðskiptingur eða kynskiptingur? Þarf ég að fara til sálfræðings? Þarf ég að fara í aðgerð? Ég er að deyja úr áhyggjum yfir því að einhver komist að þessu. Ég verð að fá svar.
Með fyrirfram þökk,
EINN MJÖG ÁHYGGJUFULLUR

ENGAR ÁHYGGJUR, ELSKU VINUR

Dr. Love er mættur til að bjarga lífi þínu! -- Þú ert ALLS EKKI klæðskiptingur eða kynskiptingur. Þú telst ekki einu sinni sem dragdrottning! Rétta orðið yfir þig er MUNALOSTI eða MUNAÐARLOSTI eins og ég hef líka heyrt talað um. Þetta er íslenska þýðingin á orðinu "FETISH" sem mikið er notað í talmáli meðal ákveðinna jaðarhópa.

Þegar þú ert haldinn munalosta þá fílar þú að nota ýmis utanaðkomandi "hjálpartæki" til að koma þér í kynferðislega gírinn eða jafnvel fílar best að stunda kynlíf undir einhverjum mjög ákveðnum kringumstæðum. Stundum sérhönnuðum!

Það kannast auðvitað allir við ímyndina um íturvöxnu konuna sem er klædd í níðþröngan leður- eða plastskrúða, í 20 cm háum hælastígvélum og heldur á svipu. Hún drottnar yfir öðrum kynfélögum sínum -- og hún ætlar ekki að tala um veðrið við þá! Þetta er kannski kliskjukenndasta hugmyndin okkar um fetish eða munalosta.

Í þínu tilfelli eru kvenmannsinniskór þitt TURN ON! FRÁBÆRT. POTTÞÉTT. ÞÁ ALLA VEGA ERTU MEÐ ÞAÐ Á TÆRU HVAÐ KEMUR ÞÉR TIL! Það er nú meira en hægt er að segja um margan Íslendinginn. Þannig að þú ert mjög heppinn, góði minn, að hafa fattað þetta. Nú getur þú lifað vel heppnuðu, stefnuvirku og meðvituðu kynlífi til æviloka. Húrra fyrir þér!

Þetta hugtak (fetish) nær yfir svo breitt svið að við getum talað um fyrirbæri eins og Uniform, bindileiki og jafnvel S&M í sömu andrá. Fyrir utan allt fólkið sem fílar að klæða sig í leður, gúmmí, plast, vínyl og risastígvél sem ná upp í klof -- þá er líka þar á meðal fólk sem fílar að vera allsbert innan undir regnkápum, eða lætur rassskella sig duglega. Allt í þágu lostans!

Fólk sem fílar að nota víbratora, dildóa og gerfipíkur gæti varla flokkast undir alvöru fetish, ekki nema það heimti það sjálft. (Sama er mér.) En þegar utanaðkomandi hjálpartæki eru í formi uppþvottahanska þá heitir það löggiltur munalosti. Sumir fíla að fróa sér einvörðungu með uppþvottahönskum.
-- Svo eru líka þeir sem til dæmis eru mjög svag fyrir öllu sem viðkemur fótum: horfa á, pæla í, sleikja, sjúga og jafnvel láta ríða sér með fótum og tám ástvinar síns. Á enskri tungu nefnist það FootFetish! Það eru gefin út heilu tímaritin fyrir þá sem lofsyngja fætur og tær. Áfram það!

Af hverju er sumt fólk haldið munalosta? Púff, það er sko búið að hnakkrífast um það í gegnum tíðina, skal ég segja þér. Flestir kynfræðingar og sálfræðingar hafa lent á þeirri niðurstöðu að fetish sé nær alltaf LÆRÐ HEGÐUN og eigi sér rætur í einhverju kynferðislegu atviki úr barnæsku.
-- Langsóttasta dæmið um fetish sem ég hef heyrt er um manninn sem gat ekki fengið það án þess að vera undir sænginni sinni og láta konuna sína fróa sér með því að nudda fótunum upp að limnum á honum. Það var rakið til atviks í barnæsku þar sem lítil systir mannsins veitti honum sína fyrstu fullnægingu þegar hún slysaðist til að nudda fótum sínum upp að honum í svefni. Sel það ekki dýrara en ég keypti það!

En þrátt fyrir allar vangaveltur um munalosta þá máttu ALDREI rugla þér saman við kynskiptinga eða klæðskiptinga. Þá erum við fyrst komin út í allt aðra sálma. Ég trúi því ekki að fólk sé ennþá að rugla þessu saman, kyn- og klæðskiptingum, og svo dragdrottningum í bland. Sumir halda jafnvel að þetta sé allt sami hluturinn!!

Hér með skal það kunngjört að kynskiptingur er manneskja sem fædd er í vitlausum líkama og með ótrúlegum viljastyrk krefst þess að fara í kynskiptiaðgerð. Klæðskiptingur er aftur á móti oftast nær GAGNKYNHNEIGÐUR KARLMAÐUR (aldrei hommi) sem klæðir sig upp í undirföt og kjóla, oftast nær af konunni sinni. Þetta gerir klæðskiptingurinn með mestu leynd, því partur af spennunni felst í því hvort einhver komi að honum við þessa iðju sína. Hann fær kynferðislegt kikk út úr því.
Dragdrottningin er aftur á móti oftast nær SAMKYNHNEIGÐUR KARLMAÐUR sem dressar sig EKKI upp í fötin af vinkonum sínum heldur eitthvað annað, meira og miklu brjálaðra en það!! Drag er aldrei það sem við getum kallað hefðbundinn kvenfatnaður!

Drottningin er ekki að fá neitt sérstakt kynferðislegt kikk út úr þessu. (Hún verður að teipa niður á sér tippið þannig að ekki er hægt að pæla í því á meðan.) Þetta hefur miklu meira með skemmtun, alter egó og leikhús að gera heldur en kynlíf. Og dragdrottningin fer aldrei meðfram veggjum, ólíkt klæðskiptingunum. Hún vill helst troða upp á Lækjartorgi!

Ég skrapp á mjög góðan fetish-klúbb fyrir bæði kynin í Berlín um daginn, "KIT KAT CLUB", þar sem reglan var einföld. Þú máttir ekki fara inn á klúbbinn í gallabuxum eða hversdagsfatnaði. Ef þú vildir komast inn þá þurftir þú vinsamlegast að klæða þig úr gallabuxunum -- og fara inn í klúbbinn á nærbuxunum ef þú varst ekki með neitt annað á þér til að vera í.

Sem betur fer var ég í pungbindi og uppreimuðum hermannastígvélum og dyravörðurinn samþykkti það! Þegar inn var komið voru allir í geðveiku stuði með brjóstin ber, í fatnaði (stundum sérhönnuðum) úr gúmmíi, leðri, plasti o.s.frv. Sumir voru bara á nærfötum í NOKIA stígvélum og fíluðu sig í botn. Aðrir voru að leika sér með fjaðrir, svipur, sexí leikföng og með þvottaklemmur á geirvörtunum. Sumir voru pakkaðir inn í glært plast (eins og "PLÁHNETAN" á plötuumslaginu) og gátu sig hvergi hreyft.

Þetta er eitthvað það mesta stuð sem ég hefi nokkurn tíma komist í á ævinni! Þetta var TOTAL FRELSI! Plötusnúðurinn var frábær og ég dansaði um á pungbindinu til klukkan 10 um morguninn. Þú ættir að fara á "KIT KAT"-klúbbinn í Berlín eða SPOTLIGHT um helgina -- klæddur í kvenmannsinniskóna, og fíla þig í botn.

NJÓTTU LÍFSINS!
ÞINN YLHÝR,
DR. LOVE

1